Landsvirkjun skerðir orku strax í næsta mánuði

„Ef haustið verður úrkomusamt gæti staðan strax skánað nokkuð, en …
„Ef haustið verður úrkomusamt gæti staðan strax skánað nokkuð, en grunnvatnsstaða Tungnaár er nú í sögulegu lágmarki og það mun hafa áhrif á rennsli árinnar á komandi vetri.“ mbl.is/RAX

Landsvirkjun mun skerða orkuafhendingu til stórnotenda á suðvesturhluta landsins. Skerðingar hefjast 24. október að öllu óbreyttu.

Í tilkynningu frá Landsvirkjun segir að ástæða skerðingarinnar sé slæm staða miðlunarlóna á Þjórsársvæðinu.

Þar kemur jafnframt fram að þótt viðskiptavinum hafi verið tilkynnt að grípa þurfi til skerðinga sé enn óljóst hver þróunin verði næstu vikurnar.

„Ef haustið verður úrkomusamt gæti staðan strax skánað nokkuð, en grunnvatnsstaða Tungnaár er nú í sögulegu lágmarki og það mun hafa áhrif á rennsli árinnar á komandi vetri.“

Hálslón komið á yfirfall

Þá er tekið fram að ekki hefði þurfti að grípa til skerðinga á þessum tímapunkti ef flutningskerfið gerði Landsvirkjun kleift að færa nægilega orku milli landshluta.

„Hálslón við Kárahnjúka er t.d. þegar komið á yfirfall. Að sama skapi er ólíklegt að grópa hefði þurft til skerðinga ef vindorkuverið við Vaðöldu (Búrfellslundur) væri tekið til starfa, en vonast er til að vindorkuverið verði komið í fullan rekstur undir árslok 2026.“

Standa við alla samninga

Þá er áréttað að aðeins sé verið að skerða orku sem Landsvirkjun og viðskiptavinir hennar hafa samið um að sé skerðanleg þegar staða miðlunarlóna er lág.

Landsvirkjun mun standa við alla samninga um afhendingu forgangsorku til stórnotenda og heildsölu. Orkufyrirtæki þjóðarinnar  hefur aldrei skert forgangsorku þau tæpu 60 ár sem það hefur starfað og ekkert bendir til skerðinga á forgangsorku á komandi vetri.  

Forgangsröðun Landsvirkjunar er sú að megináhersla er lögð á að anna eftirspurn eftir raforku til aukinnar almennrar notkunar í samfélaginu og til innlendra orkuskipta, til að styðja við aukna stafræna vegferð og nýsköpun og til að styðja við framþróun núverandi stórnotenda. Landsvirkjun hefur dregið úr sölu til gagnavera um 50% til þess að fasa út rafmyntir og gert samning við fjarvarmaveitur um forgangsorku sem kemur í veg fyrir olíunotkun á skerðingatímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert