Það verður rigning eða slydda með köflum fyrir norðan í dag en snjókoma til fjalla. Sunnan heiða verður yfirleitt bjart.
Hitinn verður 5 til 10 stig sunnan-og vestantil en 0 til 6 stig norðan- og austanlands. Á morgun verður minnkandi norðanátt, 5-13 m/s seinni partinn og verður hvassast suðaustantil. Dálítil slydduél verða norðan- og austantil en annars léttskýjað. Hitinn verður 0 til 8 stig þar sem mildast verður syðst á landinu.