Svandís vill efla virka ferðamáta

Starfshópurinn mun móta stefna og aðgerðaáætlun, ásamt mælanlegum markmiðum, fyrir …
Starfshópurinn mun móta stefna og aðgerðaáætlun, ásamt mælanlegum markmiðum, fyrir göngu, hjólreiðar og smáfarartæki sem stuðlað geti að bættu umhverfi fyrir þá ferðamáta. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Kristinn Magnússon

Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra hefur skipað starfshóp um stefnu fyrir virka ferðamáta og smáfarartæki. Starfshópnum er falið að meta stöðu virkra ferðamáta og smáfarartækja á Íslandi ásamt valkostum sem til staðar eru til að efla ferðamátana.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu. 

Starfshópurinn mun móta stefnu og aðgerðaáætlun, ásamt mælanlegum markmiðum, fyrir göngu, hjólreiðar og smáfarartæki sem stuðlað geti að bættu umhverfi fyrir þá ferðamáta. Starfshópnum er ætlað að eiga samráð við helstu hagsmunaaðila í vinnu sinni og skila niðurstöðum eigi síðar en 31. janúar 2025, segir enn fremur.

Starfshópurinn er skipaður eftirtöldum fulltrúum:

Sigrún Helga Lund, án tilnefningar
Gunnar Geir Gunnarsson, tilnefndur af Samgöngustofu
Dóra Björt Guðjónsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Sesselja Traustadóttir, tilnefnd af Landssamtökum hjólreiðamanna
Katrín Halldórsdóttir, tilnefnd af Vegagerðinni.
Hrefna Hallgrímsdóttir, starfsmaður innviðaráðuneytisins mun starfa með hópnum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert