Tveir menn sem hafa verið í gæsluvarðhaldi eftir að í ljós kom að tvær stúlkur undir 18 ára aldri voru ranglega skráðar sem dætur annars þeirra hafa verið látnir lausir.
Mennirnir voru úrskurðaðir í vikulangt gæsluvarðhald en í gæsluvarðhaldsúrskurði yfir öðrum manninum kom fram að grunur léki á því að maðurinn hefði ætlað sér að hagnýta stúlkurnar í mansal.
Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir í samtali við mbl.is að ekki hafi verið farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir mönnunum. Hann segir jafnframt að þeir sæti ekki neinum ferðatakmörkunum.
Annar mannanna er með íslenskt ríkisfang en báðir eru þeir löglegir inni í landinu að sögn Úlfars. Hann segir að málið sé enn til rannsóknar hjá lögreglu.
Fram kom í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness í tengslum við málið að rannsókn lögreglu sneri að mansali, skjalafalsi, röngum framburði og að hafa skipulagt smygl á fólki til landsins.
Í gæsluvarðhaldsúrskurði héraðsdóms kom einnig fram að stúlkurnar hefðu komið til landsins í júlí í fyrra en þær sögðust hafa komið til Íslands til að hitta föður sinn sem ætti heima á Íslandi. Við uppflettingu hjá lögreglu mátti sjá að þeim hafi verið veitt dvalarleyfi á grundvelli þess að þær ættu íslenskan föður. Jafnframt var hann skráður í kerfum stjórnvalda sem faðir stúlknanna.
Að kröfu Útlendingastofnunar voru stúlkurnar sendar í DNA-próf og tekið var sýni úr meintum föður þeirra. Í ljós kom að hann var ekki faðir þeirra.