Fimm einstaklingar fengu 2. vinninginn í lottó-útdrætti kvöldsins og hljóta 180 þúsund krónur. Enginn fékk fyrsta vinninginn.
Þetta kemur fram í tilkynningu Íslenskrar getspár.
Miðarnir voru keyptir á vefsíðu Íslenskrar getspár, í lottó-appinu og voru þrír í áskrift.
Sex einstaklingar fengu 100 þúsund krónur. Fjórir vinningshafar voru í áskrift og aðrir keyptu á vefnum og í appinu.