3,7 milljónum ríkari eftir ferð í Videómarkaðinn

Miðaeigandinn keypti vinningsmiðann í Vídeómarkaðnum í Kópavogi.
Miðaeigandinn keypti vinningsmiðann í Vídeómarkaðnum í Kópavogi. Ljósmynd/Colourbox

Einn heppinn miðaeigandi vann 3,7 milljónir í hinum al-íslenska 3. vinning í Víkinglottó í kvöld. Miðinn var keyptur í Vídeómarkaðnum í Kópavogi. 

Einnig fór 4. vinningur út en einn heppinn miðaeigandi, sem keypti miðann sinn í Lottó appinu, fær rúmar 470 þúsund krónur fyrir það.

Enginn var með 1. vinning í Vikinglottó kvöldsins en þrír heppnir Norðmenn skipta með sér 2. vinning sem færir þeim rúmar 103 milljónir króna.

Jókertölurnar í Hagkaup í Spöng

Einn var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker-útdrætti kvöldsins sem færir honum 2 milljónir króna í vasann. Hinn heppni keypti miðann sinn í Hagkaup í Spöng.

Þá voru fjórir með 2. vinning og fá þeir 100 þúsund krónur í sinn hlut. Einn miðinn var keyptur í Lottó-appinu og þrír eru í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert