„Aumingjaleg lækkun“

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR og Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri Samsett mynd

„Mér hálf flökrar við þeirri jákvæðni, og allt að því hrósi, sem álitsgjafar fjölmiðla ausa yfir Seðlabankann.“

Þetta skrifar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í færslu sem hann birti á Facebook. Hann segir að vissulega sé jákvætt að stýrivextir séu að lækka en fyrr má nú vera bjartsýnin.

„Staðreyndin er sú að alltof hátt vaxtastig mun engu að síður verða mörgum heimilum og fyrirtækjum ofviða. Raunstýrivextir, stýrivextir að frádregni verðbólgu, hafa hækkað úr 3,25% í 3,6. Þrátt fyrir „aumingjalega“ lækkun í morgun. Sem segir okkur að svigrúmið til frekari lækkana var mun meira.“

Hann segir að Seðlabankinn hafi ekki getað gert annað en lækkað vextina og hafi gert það eins lítið og hann komst upp með.

Þessi „aumingjalega“ lækkun tryggir að fjármagnið fær hærri raunávöxtun og tryggir áframhaldandi skort stöðu á húsnæðismarkaði sem hefur verið helsti drifkraftur verðbólgu á Íslandi síðustu ár og áratugi.

Búum í þjófríki

Ragnar segir að eina skjólið sem í boði er, verðtryggðu lánin, hafi bankarnir auðvitað stórhækkað vexti á og bankarnir græði sem aldrei fyrri. Fjármálakerfið fá því sitt og seðlabankastjóri sjái um sína.

„Við búum í þjófríki þar sem efnahag landsins er stýrt í þágu fjármagns og sérhagsmuna. Við erum langt frá því að vera á réttri leið, síður en svo. Og lítið er ekki gott við aðstæður þar sem lítið gerir ekkert fyrir fólkið í landinu.

 


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert