Bjarni: „Aðilar vinnumarkaðarins þurfa að spila með“

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir aðhald í ríkisrekstrinum og efnahagsstefnan hafi skilað árangri. 

„Vextir eru teknir að lækka og verðbólga hefur ekki mælst minni í þrjú ár. Þetta var forgangsmál þegar við endurnýjuðum ríkisstjórnarsamstarfið í vor. Aðhald í ríkisrekstrinum og efnahagsstefnan hafa skilað árangri,“ skrifar Bjarni í færslu sem hann birti á Facebook. 

Bjarni vísar þarna til ákvörðunar peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands sem ákvað í morgun að lækka stýri­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig. 

Getum verið bjartsýn gangi allt eftir

Hann segir nauðsynlegt að halda áfram á réttri braut, „draga úr umsvifum ríkisins og fara betur með hverja krónu skattgreiðenda. Aðilar vinnumarkaðarins þurfa að spila með, sýna það í orði og verki að raunverulegur árangur sé þeim efst í huga. Ef allt gengur eftir og verðbólgan hjaðnar áfram getum við verið bjartsýn um að mun meiri vaxtalækkanir séu í farvatninu.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert