Rafmagnstöflur brunnu í Mývatnssveit

Ólíkt flestum öðrum stöðum á Norðurlandi, sló rafmagni ekki alveg …
Ólíkt flestum öðrum stöðum á Norðurlandi, sló rafmagni ekki alveg út í nágrenni Mývatns, heldur jókst álagið á kerfið um of með tilheyrandi tjóni. mbl.is/Sigurður Bogi

Tjón hefur orðið á tækjum vegna rafmagnsbilana í Mývatnssveit í dag. Rarik biðlar til íbúa að tilkynna tjón og truflanir en einhverjar rafmagnstöflur hafa brunnið.

Eins og fram hefur komið gætti rafmagnsleysis víða á Austurlandi, Norðurlandi og Vestfjörðum í dag.

En í Mývatnssveit var sagan önnur, þar sem rafmagn leysti ekki alveg út heldur jókst álagið á rafmagnskerfið með tilheyrandi tjóni.

„Það varð eitthvað tjón á heimilistækjum og fleira. Síðast þegar ég gáði var ekki mikið af tjónatilkynningum komið inn. Það er eitthvað rafmagnsleysi þar enn þá,“ segir Rósant Guðmundsson, samskiptastjóri Rarik, í samtali við mbl.is.

Rósant segir enn ekki ljóst hvers vegna rafmagnið sló ekki út í Mývatnssveit, greiningarvinna sé enn í gangi.

„Við erum að senda út verktaka til viðskiptavina sem hafa látið okkur vita. Það hafa brunnið töflurnar og eitthvað svo líkt,“ segir Rósant.

Tjón í jarðböðunum

Bilunin olli einnig tjóni í Jarðböðunum við Mývatn og rafmagn sló út í um klukkutíma.

„Það kom í ljós þegar [rafmagnið] kom aftur inn að það hafði eitthvað af tækjum og búnaði bilað hjá okkur,“ segir Guðmundur Þór Birgisson, framkvæmdastjóri Jarðbaðanna.

Ein stór iðnaðarþvottavél sé biluð og hitastýring í húsnæði hafi bilað og ljósastýring.

Tjónið hefur samt ekki ákafleg áhrif á starfsemina og böðin opna á morgun eins og að venju.

„Smá óþægindi varðandi þetta, en allt er svona í lagi.“

Guðmundur Þór Birgisson er framkvæmdastjóri Jarðbaðanna við Mývatn.
Guðmundur Þór Birgisson er framkvæmdastjóri Jarðbaðanna við Mývatn. mbl.is/Brynjólfur Löve

Enn er ekki ljóst hvað hefur valdið rafmagnsleysinu mikla en fram hefur komið að það eigi upptök sín á Vesturlandi. Nánar tiltekið sló út við reglubundið viðhald í verksmiðju Norðuráls á Grundartanga.

Áætlað er að ríf­lega 15.500 heim­ili og fyr­ir­tæki hafi verið á meðal þeirra viðskipta­vina RARIK sem urðu fyr­ir áhrif­um raf­magns­leys­is og trufl­ana fyrr í dag.

Raf­magns­leysið verður tekið til umræðu í um­hverf­is- og sam­göngu­nefnd Alþing­is í næstu viku, að sögn nefnd­ar­for­manns.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert