„Starfsfólkið er slegið“

Töluverðar skemmdir urðu á húsnæðinu.
Töluverðar skemmdir urðu á húsnæðinu. mbl.is/Karítas

„Starfsfólkið er slegið en það er fyrir mestu að enginn skyldi slasast eða láta lífið í svona atburði. Það er númer eitt, tvö og þrjú.“

Þetta segir Rúnar Vilhjálmsson, annar eigenda tannlæknastofunnar Krýnu við Fellsmúla, þar sem eldur kviknaði í nótt.

Búast má við því að stofan verði lokuð í einhverja daga og hugsanlega vikur vegna eldsvoðans, að sögn Rúnars en hún er á fimmtu hæð hússins.

mbl.is/Karítas

Hann segir að töluvert tjón hafi orðið á húsnæðinu, bæði af völdum elds og reyks en sjálfur hefur hann ekki farið þangað inn vegna rannsóknar lögreglunnar. Einnig varð vatnstjón eftir að rör fór í sundur. Hann kveðst ekkert vita um upptök eldsins.

mbl.is/Karítas

Í febrúar síðastliðnum varð mikill eldsvoði í Fellsmúla.

„Það var við hliðina á okkur. Þá sluppum við mjög vel og engar skemmdir, þannig, hjá okkur þá,“ segir Rúnar, sem vonast til að geta opnað stofuna aftur sem allra fyrst.

mbl.is/Karítas
mbl.is/Karítas
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert