Hrinan í ágúst sú stærsta frá upphafi

Bera fór skyndilega á skjálftunum í Ljósufjallakerfinu árið 2021. Þeir …
Bera fór skyndilega á skjálftunum í Ljósufjallakerfinu árið 2021. Þeir hafa að mestu verið bundnir við afmarkað svæði við Grjótárvatn og Hítarvatn. mbl.is/Árni Sæberg

Smáskjálftahrinan sem varð í Hítárdal á Snæfellsnesi var sú stærsta frá upphafi mælinga með tilliti til fjölda skjálfta. Alls mældust 80 skjálftar í Ljósufjallakerfinu í mánuðinum, en frá því vorið 2021 höfðu um 20 skjálftar mælst á mánuði.

mbl.is og Morgunblaðið hafa fjallað ítarlega um skjálftavirkni í Ljósufjallakerfinu en hún tók sig skyndilega upp árið 2021.

Nýr mælir, betri vöktun

Veðurstofa Íslands kom nýjum jarðskjálftamæli fyrir nú í lok september og er hann um 5 km norðvestur af Grjótárvatni. Jarðskjálftavirknin hefur að mestu raðað sér í kringum vatnið.

Í tilkynningu á vef Veðurstofunnar segir að með nýjum skjálftamæli muni nákvæmni á staðsetningu skjálfta á svæðinu aukast. Áður var nálægasta stöðin á Ásbjarnarstöðum í uppsveitum Borgarfjarðar í um 30 km fjarlægð frá upptökum skjálftanna.

Telur Veðurstofan að skjálftavirknin í Ljósufjallakerfinu sé ekki af völdum kvikusöfnunar, að svo stöddu að minnsta kosti. Í tilkynningunni er velt upp þeim möguleika að innflekaskjálftavirkni valdi skjálftunum.

Nýr mælir muni hjálpa til við að varpa ljósi á virknina sem hefur verið þar í rúm þrjú ár.

Efra grafið sýnir stærð skjálfta á svæðinu frá 2021 og …
Efra grafið sýnir stærð skjálfta á svæðinu frá 2021 og neðra grafið sýnir fjölda skjálfta í mánuði fyrir sama tímabil. Kort/Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert