Lið Manchester United flýgur með Icelandair

Manchester United mætir Porto í Portúgal í kvöld.
Manchester United mætir Porto í Portúgal í kvöld. AFP

Þota frá Icelandair flutti lið Manchester United frá flugvellinum í Manchester til Porto í Portúgal í gær.

Þetta herma heimildir mbl.is en Loftleiðir, dótturfélag Icelandair, annaðist flugið.

Þotan flýgur svo með Manchester-liðið frá Porto til Manchester á morgun.

Victor Lindelöf og Alejandro Garnacho búa sig undir að stíga …
Victor Lindelöf og Alejandro Garnacho búa sig undir að stíga upp í vél Icelandair á flugvellinum í Manchester í gær. Ljósmynd/Manchester United

Mætir Porto

Manchester United mætir Porto í 2. umferð Evrópudeildarinnar á Estadio do Dragao-leikvanginum í Porto í kvöld

United varð að sætta sig við 1:1 jafntefli gegn Twente frá Hollandi í fyrstu umferð keppninnar á Old Trafford í síðustu viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert