Hommar megi loksins gefa blóð á næsta ári

Sam­kyn­hneigðum karl­mönn­um hef­ur til þessa ekki verið heim­ilt að gefa …
Sam­kyn­hneigðum karl­mönn­um hef­ur til þessa ekki verið heim­ilt að gefa blóð vegna kynhegðunar sinnar. Kristinn Ingvarsson

Frá og með júlí á næsta ári mega karlmenn sem stunda kynlíf með karlmönnum gefa blóð á Íslandi. 

Sam­kyn­hneigðum karl­mönn­um hef­ur til þessa ekki verið heim­ilt að gefa blóð á grund­velli reglu­gerðar þar sem gert er ráð fyr­ir frá­vís­un gjafa blóðein­inga frá fólki „sem vegna kyn­hegðunar sinn­ar er mjög hætt við að fá al­var­lega smit­sjúk­dóma sem geta borist með blóði“.

Vísir greindi fyrst frá.

Eitt fjögurra ríkja sem enn banna blóðgjafir

Hafa flest Evrópuríki þegar snúið við lögunum sem mörgum þykja úrelt og einkennast af fordómum gegn samkynhneigðum karlmönnum. Er Ísland er eitt fjögurra Evrópuríkja sem banna enn alfarið blóðgjafir þeirra, ásamt Tyrklandi, Kósovó og Króatíu.

Er breytingin liður í aðgerðaráætlun í málefnum hinsegin fólks sem var samþykkt á Alþingi árið 2022. Felur breytingin jafnframt í sér að kynhegðun myndi ekki lengur valda varanlegri frávísun blóðgjafar.

Þess í stað var kveðið á um að blóðgjafi mætti ekki hafa stundað áhættusamt kynlíf í fjóra mánuði og lögð var til skilgreining á því hvað teldist áhættusamt kynlíf, sem var „kynlíf sem eykur verulega líkur á að alvarlegir smitsjúkdómar berist með blóði“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert