Skýr skilaboð um að flýta vinnunni

Guðlaugur segir að búið sé að keyra mjög mörg mál …
Guðlaugur segir að búið sé að keyra mjög mörg mál í gegn á þessu kjörtímabili og full þingmálaskrá bíði afgreiðslu. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Við hljótum að átta okkur á því í þessu rafmagnsleysi að við verðum að hafa fyrirkomulag sem virkar. Auðvitað er best að nærsamfélagið klári málið. En ef við erum komin á þann stað að sveitarfélögin geti einhverra hluta vegna ekki klárað sína skipulagsvinnu eða geri það ekki þá þurfum við að gera þetta með öðrum hætti. Það segir sig sjálft,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis- og orkumálaráðherra um rafmagnsleysið á Norður- og Austurlandi í vikunni og 20 ára töf á vinnu við Blöndulínu 3.

Hann segir að skilaboð til flutningsfyrirtækisins og sveitarfélaganna séu skýr og að stjórnvöld séu tilbúin að gera allt til að flýta fyrir að leyfisferlar verði skilvirkari.

„Viðbrögðin sem ég hef fengið hjá sveitarfélögunum eftir samtöl hafa verið á þann veg að það eykur bjartsýni á að þetta verði klárað en okkur liggur á og við fylgjumst með því hvernig málum vindur fram. Ef við sjáum hins vegar fram á að það sé ekkert að gerast þá segir það sig sjálft að það þarf að hugsa þetta upp á nýtt.“

Nán­ar má lesa um málið í Morg­un­blaðinu í dag, laug­ar­dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka