Þrír á slysadeild eftir þriggja bíla árekstur

Þrír voru fluttir á slysadeild með minnháttar meiðsli eftir áreksturinn.
Þrír voru fluttir á slysadeild með minnháttar meiðsli eftir áreksturinn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Harður þriggja bíla árekstur varð á Suðurlandsvegi við Hólmsá nærri afleggjaranum að Heiðmörk á tólfta tímanum í morgun.

Að sögn Davíðs Friðjónssonar, aðstoðarvarðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, voru þrír fluttir til skoðunar á slysadeild með minniháttar meiðsli.

Tveir dælubílar og þrír sjúkrabílar voru sendir á vettvang þar sem um stóra umferðaræð er að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka