Í dag verður norðaustlæg átt, víða 5 til 13 metrar á sekúndu og lítilsháttar él á norðaustanverðu landinu, en annars yfirleitt léttskýjað. Lægir síðdegis.
Skýjað verður með köflum og víða dálítil él á morgun, en snýst í austan og suðaustan 5-10 m/s með lítilsháttar slyddu eða rigningu suðvestantil seinnipartinn.
Hiti verður á bilinu 1 til 8 stig yfir daginn, mildast sunnantil.