Andlát: Sigríður Hrönn Elíasdóttir

Sigríður Hrönn Elíasdóttir, fv. sveitarstjóri í Súðavík, lést 5. október sl. 65 ára að aldri, eftir erfiða baráttu við MND-sjúkdóminn.

Sigríður fæddist í Reykjavík 6. ágúst 1959. Foreldrar hennar voru Elías Ben Sigurjónsson og Ingibjörg Ólafsdóttir. Á öðru ári flutti fjölskylda Sigríðar til Súðavíkur og þar ólst hún upp. Eftir grunnskólanám í Súðavík og Héraðsskólanum að Núpi í Dýrafirði fór Sigríður í Verzlunarskólann. Á sumrin og þegar færi gafst vann hún í frystihúsinu í Súðavík. Árin 1979-1980 var hún útibússtjóri Kaupfélagsins í Súðavík en tók sér frí frá vinnu um tíma. Hún lét að sér kveða í verkalýðsmálum og átti sæti í stjórn verkalýðsfélagsins á staðnum.

Eftir eitt ár í vinnu hjá Sparisjóði Súðavíkur tók hún að sér framkvæmdastjórn sveitarfélagsins, auk þess að vera oddviti hreppsnefndar frá kosningum 1986. Hún var ráðin sveitarstjóri í Súðavík 1990 og var í því starfi þegar snjóflóð féll á Súðavík í janúar 1995. Hún var að auki formaður almannavarnanefndar Súðavíkur og mæddi mikið á henni á erfiðum tímum, en 14 fórust í flóðinu. Sigríður lét af starfi sveitarstjóra sumarið 1995 en hélt áfram í hreppsnefnd sem oddviti þar til kjörtímabilinu lauk 1998. Að loknum kosningum það ár varð hún formaður hafnarstjórnar Súðavíkur en hætti afskiptum af sveitarstjórnarmálum 2002. Samhliða störfum í hreppsnefnd var hún m.a. svæðisfulltrúi Rauða krossins á Vestfjörðum og sá þá um móttöku flóttafólks frá Júgóslavíu. Einnig vann hún í Sparisjóði Súðavíkur og var starfsmaður Vinnumálastofnunar Vestfjarða frá 2001 til 2006, er hún flutti til Reykjavíkur. Var hún fjármálastjóri hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar til 2022.

Sigríður var alla tíð virk í starfi Sjálfstæðisflokksins, bæði á Vestfjörðum og í Grafarvogi eftir að hún flutti suður. Sigríður hafði mikinn áhuga á brids, varð fyrst kvenna Íslandsmeistari í einmenningi, árið 2002, og vann til fjölda verðlauna.

Ári eftir snjóflóðin greindist Sigríður með MS-sjúkdóminn, náði aldrei bata en lærði að lifa með honum. Að mati lækna mátti rekja orsakir veikinda til mikils álags eftir snjóflóðin. Haustið 2019 veiktist hún á ný og greindist á endanum með MND-sjúkdóminn. Eftirlifandi börn Sigríðar Hrannar og Óskars Elíassonar, d. 2014, eru Alda Björk og Örvar Snær. Barnabörnin eru fimm

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert