Bjarni: „Hið versta mál“

Bjarni Benediktsson hefur sett af stað vinnu til að bæta …
Bjarni Benediktsson hefur sett af stað vinnu til að bæta opinbera hagskýrslugerð. Samsett mynd/Colourbox/mbl.is/Ólafur Árdal

Fimm þúsund manns í fæðingarorlofi voru ranglega talin starfsmenn ríkisstofnana í opinberum gögnum Hagstofunnar. Ríkisstarfsmenn ofmetnir um 5.000 manns.

„Þetta kemur fram í sérvinnslu sem ég óskaði eftir í framhaldi af opinberum tölum stofnunarinnar um umsvif á vinnumarkaði í júlí. Af þessu leiðir að fjölgun starfsmanna ríkisstofnana hefur verið ofmetin samhliða lengingu fæðingarorlofs,“ skrifar Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í færslu sem hann birti á Facebook. 

Um 90% fjölgunar á vinnumarkaði verið í einkageiranum

Hann segir að undanfarið ár hafi tæplega 90% fjölgunar á vinnumarkaði raunar verið í einkageiranum, þvert á það sem reglulega sé haldið fram í opinberri umræðu.

Hlutfallsleg fjölgun í einkageiranum og hjá hinu opinbera sé nokkurn veginn sú sama, eða um 1%.

Villur í opinberum gögnum hið versta mál

„Villur í opinberum gögnum eru hið versta mál, ekki síst þegar þær verða grundvöllur umræðu um útþenslu hins opinbera sem enginn fótur reynist fyrir. Eða þegar hagvöxtur er vanmetinn um það sem nemur hagvexti í eðlilegu árferði,“ skrifar Bjarni. 

Hann tekur fram, að það sé mikilvægt að fjölmiðlar og almenningur sýni stjórnvöldum aðhald þegar komi að útþenslu hins opinbera.

„Aðhald í ríkisrekstrinum er enda yfirlýst forgangsmál okkar, til að styðja við áframhaldandi lækkun verðbólgu og vaxta. En þegar gögnin standast ekki skoðun, þá gerir umræðan það ekki heldur.

Á þeim grundvelli hef ég komið af stað vinnu til að bæta opinbera hagskýrslugerð. Röng gögn geta nefnilega verið verri en engin og þangað viljum við ekki fara.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert