Fannst látin í Jökulsá

Konan fannst látin.
Konan fannst látin. mbl.is/Sverrir

Kona á fertugsaldri, erlendur ferðamaður sem var á ferð í Stuðlagil við annan mann, fannst látin í Jökulsá skammt neðan við Stuðlagil skömmu fyrir kl. 17 í dag. 

Lögreglunni barst tilkynning um að einstaklingur hefði fallið í ána á þriðja tímanum í dag. Viðkomandi hafði sést fljóta í ánni en síðan horfið sjónum.

Lögreglan á Austurlandi fer með rannsókn málsins.

Björgunarsveitir og þyrlur

Að leitinni komu björgunarsveitir frá Austurlandi, áhöfn á þyrlu Landhelgisgæslunnar, sjúkraliðar og lögregla.

Önnur þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út til að flytja kafara slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu á vettvang en var síðar kölluð til baka. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert