Fjölga innflytjendum í háskólanámi

Verkefnið stuðlar að fjölgun innflytjenda í háskólanámi.
Verkefnið stuðlar að fjölgun innflytjenda í háskólanámi. Ljósmynd/Colourbox

Til þess að stuðla að fjölgun innflytjenda í háskólanámi hafa opinberu háskólarnir á Íslandi ýtt af stað samstarfsverkefni um inngildingu í íslensku háskólasamfélagi.

Verkefnið er unnið með styrk frá háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu.

Grundvöllur árangursríkrar samfélagsþátttöku

Segir í tilkynningu að í dag fari innflytjendur síður í háskólanám en önnur ungmenni og þurfi að takast á við fleiri áskoranir. Við þessu vilja opinberu háskólarnir bregðast.

Með tilkomu fjölmenningarsamfélags og breyttri samfélagsgerð á Íslandi sé mikilvægt að menntastofnanir komi til móts við og þróist samhliða fjölbreyttum þörfum samfélagsins.

„Jöfn tækifæri til menntunar og þjálfunar eru nauðsynlegur grundvöllur árangursríkrar þátttöku í samfélaginu og stuðla einnig að uppbyggingu á inngildandi samfélagi.“ 

Ætlun verkefnisins er að þróa leiðir sem stuðla að aukinni …
Ætlun verkefnisins er að þróa leiðir sem stuðla að aukinni inngildingu í háskólasamfélaginu, fjölga innflytjendum í háskólanámi og sporna við brottfalli. Ljósmynd/Aðsend

Auka inngildingu og sporna við brottfalli

Í samstarfsverkefninu, sem er til tveggja ára, er ætlunin að þróa leiðir sem stuðla að aukinni inngildingu í háskólasamfélaginu, fjölga innflytjendum í háskólanámi og sporna við brottfalli þeirra.

Það verði m.a. gert með útfærslu stuðningsúrræða, þjónustu og ráðgjafar auk þess sem þróuð verður inngildingarstefna og móttökuáætlun ásamt fræðslu og þjálfun starfsfólks.

Joanna Marcinkowska, sérfræðingur í fjölmenningu og inngildingu, mun stýra verkefninu en Arnar Gíslason frá Háskóla Íslands leiðir stýrihóp þess.

Í hópnum sitja þau Anna Soffía Víkingsdóttir, frá Háskólanum á Akureyri, Gunnhildur Guðbrandsdóttir, frá Landbúnaðarháskóla Íslands, Laufey Haraldsdóttir, frá Hólaskóla – Háskólinn á Hólum, ásamt Juan Camilo Roman Estrada, Sabrina Rosazza, og Sveinn Guðmundsson, úr Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert