„Hrikalegt bakslag“

Ingibjörg Isaksen segir að þetta sé sorgleg staða.
Ingibjörg Isaksen segir að þetta sé sorgleg staða. Samsett mynd/mbl.is/Sigurður Bogi/Aðsend

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að ákvörðun matvælaráðuneytisins og Byggðastofnunar um að ekki standi til að vera með frekari undanþágur frá vinnsluskyldu vegna úthlutunar á sértækum byggðakvóta til Grímseyjar vera hrikalegt bakslag fyrir byggð í eyjunni. 

„Aðeins tveir aðilar uppfylla skilyrðin og því ríkir algjört upplausnarástand í eyjunni. Aðrir sem vilja fá þennan sértæka byggðakvóta þurfa að koma upp vinnslu úti í eyjum með tilheyrandi kostnaði, mannskap, sem ekki er til staðar, og flytja hann í land með ferjunni með enn meiri kostnaði, ferju sem ekki alltaf er til staðar,“ sagði Ingibjörg undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. 

Hún benti á að staðan í Grímsey væri þannig að líklega væri hluti íbúa að horfa nú til flutnings.

Mörg hundruð ára saga búsetu mögulega að líða undir lok

„Þessi ákvörðun vekur furðu þar sem hún er hrikalegt bakslag fyrir byggð í Grímsey,“ sagði hún og bætti við að þrátt fyrir að Grímsey væri ekki lengur þátttakandi í verkefni Byggðastofnunar um brothættar byggðir þá væri byggðin enn brothætt.

„Eftir mörg hundruð ára sögu um búsetu í eyjunni er hún mögulega að líða undir lok og það er á okkar ábyrgð. Það er sorglegt að sjá okkur taka skref aftur á bak hvað varðar stuðning ríkisins við brothættar byggðir í landinu því að þegar öllu er á botninn hvolft er það ákvörðun að halda byggð í landinu, halda byggð í öllu landinu,“ sagði Ingibjörg. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert