Myndir: Geitin lent við IKEA

Geitinni hefur verið komið fyrir við IKEA venju samkvæmt.
Geitinni hefur verið komið fyrir við IKEA venju samkvæmt. mbl.is/Hákon

Undirbúningur fyrir jólin er hafinn í IKEA rétt eins og hann gerir á hverju ári um þetta leyti. Geitinni var komið fyrir á sínum stað fyrir utan verslunina í gær.

„Hún er orðin algjör drottning og er komin til að vera,“ segir Guðný Camilla Aradóttir verslunarstjóri IKEA. Geitin er vel vöktuð að sögn Guðnýjar en brennuvargar hafa ítrekað reynt að kveikja í henni. Ekki hefur tekist að kveikja í henni síðan 2016.

Guðný segir jólaandann kominn yfir starfsfólkið.
Guðný segir jólaandann kominn yfir starfsfólkið. mbl.is/Hákon

Vitleysan vonandi að deyja út

Guðný segir jólaandann kominn yfir starfsfólkið og mikil stemning sé í fyrirtækinu.

„Sem betur fer hefur geitin verið látin vera undanfarin ár og vonandi er þessi vitleysa að deyja út,“ segir Guðný og bætir við að jólin hefjist í vikunni hjá versluninni.

Guðný segir geitina drottningu.
Guðný segir geitina drottningu. mbl.is/Hákon
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert