Stunguárásin var gerð í Grafarvogi í nótt

VIðbúnaðurinn var mikill þegar tilkynningin barst.
VIðbúnaðurinn var mikill þegar tilkynningin barst. Ljósmynd/Colourbox

Líkamsárásin þar sem einn var fluttur á slysadeild eftir að hníf hafði verið beitt var gerð í Grafarvogi rétt fyrir klukkan þrjú í nótt.

Viðbúnaður var mikill eftir að tilkynningin barst og voru sjúkralið og lögregla send á vettvang.

Hjördís Sigurbjartsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segist ekki hafa upplýsingar um líðan þess sem varð fyrir árásinni.

Aðspurð vill hún ekki gefa upp aldur þeirra sem tengjast málinu en tveir voru handteknir og einn fluttur á slysadeild. 

Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar hefur núna tekið við rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert