Alma Möller landlæknir hefur ákveðið að gefa kost á sér á lista Samfylkingarinnar fyrir komandi þingkosningar.
Þetta herma heimildir mbl.is en Vísir greindi fyrst frá.
Alma var skipaður landlæknir árið 2018 og er fyrsta konan sem gegnir embættinu. Í gegnum kórónuveirufaraldurinn kynntust Íslendingar henni vegna tíðra upplýsingafunda um stöðu faraldursins og heilbrigðiskerfisins.
Alma var í faraldrinum hluti af þríeykinu svokallaða en í þeim hópi voru einnig Víðir Reynisson sviðsstjóri almannavarna og Þórólfur Guðnason þáverandi sóttvarnalæknir.