Gengi hlutabréfa í flugfélaginu Play lækkaði um rúm 28% í kauphöllinni í dag. Virði bréfanna hefur aldrei verið lægra.
Eftir lokun markaða stendur verð á hlut í 1,38 krónum, en velta bréfanna í dag var aðeins upp á tólf milljónir króna.
Í upphafi árs nam verðið 7,85 krónum á hlut. Gengi bréfanna hefur því lækkað um 82,31% á árinu.
Flugfélagið tilkynnti í gær að til standi að gera viðamiklar breytingar á rekstri félagsins frá og með miðju næsta ári, sem felur meðal annars í sér að félagið sækir um annað flugrekstrarleyfi á Möltu.
Einar Örn Ólafsson forstjóri Play fór yfir breytingarnar í viðtali á mbl.is í gær.