17 ára barn lést í brunanum

Barn lést og starfsmaður slasaðist í brunanum.
Barn lést og starfsmaður slasaðist í brunanum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

17 ára drengur lét lífið í brunanum á Stuðlum í morgun og starfsmaður slasaðist.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Ólöfu Ástu Farestveit, forstjóra Barna- og fjölskyldustofu.

„Öll vinna á heimilum og stofnunum Barna- og fjölskyldustofu miðar að því að öryggi barna og starfsfólks sé tryggt. Stofnunin harmar að það hafi ekki tekist í dag og er í djúpri sorg yfir þessu alvarlega atviki,“ segir í yfirlýsingunni.

Segir að aðgerðir stofnunarinnar frá í morgun hafi miðað að því að tryggja áfram öryggi og velferð allra sem málið snertir.

Gerðar hafi verið ráðstafanir fyrir börnin sem voru vistuð á Stuðlum og áfallateymi Rauða krossins hafi verið kallað til. Lögreglan fer með rannsókn málsins.

Banaslys varð þegar eldur kom upp á meðferðarheimilinu Stuðlum.
Banaslys varð þegar eldur kom upp á meðferðarheimilinu Stuðlum. Ólafur Árdal

Starfsemi færð tímabundið á Vog

„Ljóst er að húsnæði Stuðla er skemmt og ekki unnt að halda þar úti hefðbundinni þjónustu. Búið er að gera samkomulag við SÁÁ um tímabundin afnot af húsnæði á Vogi, þar hefur verið hliðrað til svo hægt sé að bregðast við stöðunni á meðan unnið er að viðgerðum á Stuðlum.“

Þar sé um að ræða húsnæði sem sé unnt að aðskilja frá almennri starfsemi þar sem sérfræðingar Stuðla og Barna- og fjölskyldustofu muni áfram hlúa að börnunum.

Viðgerðum á Stuðlum verði flýtt eins og unnt er og áhersla verði lögð á að ljúka uppbyggingu annarra meðferðarúrræða sem unnið hefur verið að.

„Fyrir hönd Barna- og fjölskyldustofu þakka ég viðbragðsaðilum og barnaverndarþjónustum
sveitarfélaga fyrir viðbrögð þeirra í morgun. Ég þakka um leið SÁÁ fyrir skjót viðbrögð og stuðning. Ég votta aðstandendum barnsins mína dýpstu samúð,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert