Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna líkamsárásar

Vopnafjörður.
Vopnafjörður. mbl.is/Jón Sigurðsson

Héraðsdómur Austurlands hefur fallist á kröfu lögreglustjórans á Austurlandi um gæsluvarðhald yfir einstaklingi sem grunaður er um líkamsárás á Vopnafirði á miðvikudag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi í kvöld.

Fyrr í dag var tilkynnt um að einstaklingurinn hefði verið handtekinn á miðvikudag grunaður um al­var­lega lík­ams­árás gagn­vart fyrr­um sam­býl­is­konu.

Eft­ir því sem rann­sókn máls­ins vatt fram var ákvörðun tek­in um að krefjast gæslu­v­arðhalds.

Var sú krafa samþykkt og var einstaklingurinn úrskurðaður í gæsluvarðhald til 4. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert