30% með langvarandi áhrif covid

Reykjalundur.
Reykjalundur. mbl.is/Sigurður Bogi

Rúm tvö ár eru frá því að öll­um sam­komutak­mörk­un­um var aflétt vegna kór­ónu­veirufar­ald­urs­ins. Þrátt fyr­ir það virðist veir­an enn þann dag í dag hafa tals­verð áhrif á líf fólks en um 35 manns hafa lagst inn á gigt­ar­svið Reykjalund­ar síðustu 12 mánuði vegna langvar­andi áhrifa af veirunni. Þetta seg­ir Lovísa Leifs­dótt­ir, lækn­ir á gigt­ar­sviði Reykjalund­ar, í sam­tali við Morg­un­blaðið.

Síðustu 12 mánuði hafa 120 manns komið í end­ur­hæf­ingu á gigt­ar­svið Reykjalund­ar og tæp 30% þeirra glíma við langvar­andi áhrif kór­ónu­veirunn­ar.

Frá því far­ald­ur­inn hófst árið 2020 hafa á þriðja hundrað leitað til Reykjalund­ar fyr­ir end­ur­hæf­ingu vegna langvar­andi áhrifa.

Lesa má meira um málið í Morg­un­blaðinu í dag. 

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert