Vilja skoða tölvu Jóhannesar

Arna McClure yfirlögfræðingur Samherja vill losna úr stöðu sakbornings í …
Arna McClure yfirlögfræðingur Samherja vill losna úr stöðu sakbornings í máli héraðssaksóknara vegna meintra brota fyrirtækisins í Namibíu. Samskipti, sem vistuð eru í tölvu Jóhannesar Stefánssonar, meints uppljóstrara í málinu, eru þrætuepli verjanda Örnu og saksóknara.

„Í vor fóru fram skýrslu­tök­ur yfir sak­born­ing­um þar sem vitnað var til þess­ara sam­skipta, en í þeim var nán­ast ekki neitt efn­is­legt,“ seg­ir Hall­dór Brynj­ar Hall­dórs­son, verj­andi Örnu McClure, fyrr­ver­andi yf­ir­lög­fræðings Sam­herja, í sam­tali við mbl.is.

Skjól­stæðing­ur hans hef­ur um fjög­urra og hálfs árs skeið haft rétt­ar­stöðu sak­born­ings í máli héraðssak­sókn­ara vegna meintra brota Sam­herja í Namib­íu.

Vís­ar Hall­dór til sam­skipta við Örnu og fleiri aðila, sem fund­ust í far­tölvu Jó­hann­es­ar Stef­áns­son­ar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra í Namib­íu og meints upp­ljóstr­ara í máli sak­sókn­ara gegn Sam­herja, en tölv­una af­henti hann héraðssak­sókn­ara fyr­ir tæp­um fimm árum, sem hef­ur hana enn í fór­um sín­um.

Vissu ekki af téðum sam­skipt­um

Krafðist Hall­dór þess, fyr­ir hönd skjól­stæðings síns, að fá aðstöðu hjá sak­sókn­ara með það fyr­ir aug­um að kynna sér önn­ur þau sam­skipti sem kann að vera að finna á far­tölv­unni. Þessu hafnaði sak­sókn­ari á þeim for­send­um að sam­skipt­in teld­ust ekki til gagna máls­ins og hef­ur sú höfn­un nú verið kærð til héraðsdóms.

„Við, verj­end­ur og sak­born­ing­ar máls­ins, viss­um ekki af þess­um sam­skipt­um sem dúkka allt í einu upp úr tölv­unni núna í vor, tölvu sem héraðssak­sókn­ari heft­ur haft und­ir hönd­um í á fimmta ár,“ seg­ir Hall­dór.

„Við óskuðum eft­ir að fá að sjá sam­skipti Jó­hann­es­ar við þessa meintu mútuþega og aðra aðila úti í Namib­íu og feng­um að skoða þau, við feng­um ekki af­rit af þeim vegna þess að þau voru ekki meðal gagna máls­ins og það eitt og sér finnst okk­ur reynd­ar stórfurðulegt – að sam­skipti meints upp­ljóstr­ara við meinta mútuþega, sem héraðssak­sókn­ari hef­ur haft und­ir hönd­um í tæp fimm ár, skuli ekki vera meðal gagna máls­ins. Lög­reglu ber að draga allt fram sem horf­ir til sekt­ar og sýknu en þarna er verið að halda frá gögn­um sem við telj­um mjög mik­il­væg,“ seg­ir lögmaður­inn.

Jó­hann­es hafi stjórnað starf­sem­inni

Við skoðun téðra sam­skipta kveðst Hall­dór ekki hafa séð bet­ur en að þau hafi stutt það sem skjól­stæðing­ur hans hef­ur haldið fram um lengri tíma, „að Arna er nátt­úru­lega búin að vera að reyna að losna út úr þess­ari rann­sókn í tvö og hálft ár núna og í þess­um sam­skipt­um kem­ur ým­is­legt fram sem styður það“, held­ur hann áfram.

Sam­skipt­in, sem tölv­an geym­ir, varpi mjög skýru ljósi á líferni meints upp­ljóstr­ara sem varn­araðilar máls­ins hafi haldið fram að hafi þýðingu fyr­ir trú­verðug­leika hans. „Þau varpa ljósi á að þess­ir meintu mútuþegar voru að veita dótt­ur­fé­lög­um Sam­herja í Namib­íu marg­vís­lega ráðgjöf, þvert á það sem meint­ur upp­ljóstr­ari hef­ur haldið fram, auk þess sem þau varpa nokkuð skýru ljósi á, að okk­ar viti, að meint­ur upp­ljóstr­ari hafi stjórnað starf­sem­inni í Namib­íu. Þannig að okk­ur finnst þar með enn sér­stak­ara að ekki sé búið að gera þessi gögn að gögn­um máls­ins,“ út­skýr­ir Hall­dór.

Hann vill því, sem verj­andi Örnu, fá að skoða tölv­una í heild sinni, „hvaða önn­ur sam­skipti séu til dæm­is í henni, sam­skipti við ein­hverja aðra til dæm­is, við vit­um ekk­ert hvað er í tölv­unni. Og núna erum við sem sagt að gera kröfu um það fyr­ir héraðsdómi að fá að skoða tölv­una, bara með lík­um hætti og við feng­um að skoða þessi gögn í sum­ar, við erum ekki að krefjast þess að fá tölv­una af­henta, bara að fá að skoða hana,“ seg­ir verj­and­inn.

Var ágrein­ing­ur um kröf­una flutt­ur fyr­ir Héraðsdómi Reykja­vík­ur á þriðju­dag­inn og bíður málið nú úr­sk­urðar dóm­ara.

mbl.is

Bloggað um frétt­ina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert