Lögregla veitti ökumanni eftirför í morgun sem síðar endaði með handtöku í Grafarvogi.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hlýddi ökumaðurinn ekki stöðvunarmerkjum lögreglunar.
Eins og sjá má í myndskeiðinu sem fréttinni fylgir voru að minnsta kosti fimm lögreglubílar á vettvangi en ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um málið að sinni.