„Ferlegt að fá ekki meira frá tönninni“

Jón Ingi er hér til vinstri á myndinni.
Jón Ingi er hér til vinstri á myndinni. mbl.is/Karítas

Aðalmeðferð hófst í dag í stóru fíkni­efna­máli vegna glæpa­hóps sem grunaður er um inn­flutn­ing, vörslu, sölu og dreif­ingu fíkni­efna.

Sak­born­ing­ar máls­ins eru 15. Þeir voru upp­runa­lega 18 en þrír ákærðu hafa játað sök og hafa mál þeirra því verið skil­in frá stóra mál­inu. Nokkr­ir sak­born­ing­anna hafa játað brot sitt að hluta.

Dómþing fer fram í dómsal 101 og er þétt­setið af átta sak­born­ing­um og um 15 verj­end­um.

Áhorf­end­ur fylgd­ust með í dómsal 102 á stór­um skjá. Nokkr­ir verj­end­ur sem könnuðu aðstæður áhorf­enda sögðu að slíkt hefði aldrei áður verið gert í Héraðsdómi Reykja­vík­ur.

Ólög­leg­ar hljóðrit­an­ir

Jón Ingi Sveins­son, ann­ar höfuðpaur­anna í mál­inu, var fyrst­ur til að gefa skýrslu fyr­ir dóm­in­um.

Karl Ingi Vil­bergs­son sak­sókn­ari bar und­ir hann tengsl við hina átta sak­born­ing­anna sem ákærðir eru fyr­ir fyrsta kafla ákær­unn­ar, þ.e.a.s. stór­fellt fíkni­efna­brot. Hann sagði flesta vera vini, vin­kon­ur eða kunn­ingja.

Verjendur og sakborningar í málinu.
Verj­end­ur og sak­born­ing­ar í mál­inu. mbl.is/​Karítas

Þá næst bar Karl Ingi hljóðrit­an­ir lög­reglu und­ir hann. Verj­andi hans mót­mælti því harðlega og sagði gögn­in vera ólög­leg þar sem þau voru gerð meðan Jón Ingi var er­lend­is.

Jón Ingi neitaði að svara fyr­ir hljóðrit­an­irn­ar þar sem þær voru gerðar í janú­ar á þessu ári er hann var stadd­ur í Dóm­in­íska lýðveld­inu. Þá vildi hann ekki held­ur kann­ast við sam­skipt­in.

Jón Ingi sagði ít­rekað að hann ætlaði ekki að ræða sam­skipt­in. Hann hafi verið er­lend­is og að um ólög­leg gögn væri að ræða. „Lög­regl­an verður að fara eft­ir lög­um líka.”

Íhugaði að flytja til Bras­il­íu

Sam­skipt­in héldu áfram fram á vorið. Meðal ann­ars er talað um hlut­verk sak­born­ing­anna í brot­a­starf­sem­inni og að einn þeirra skuldi Jóni Inga 10 millj­ón­ir króna. Sá er sakaður um að hafa ætlað að flytja inn fíkni­efni fal­in í pott­um með skemmti­ferðaskipti.

Þá var minnst á hinn al­ræmda Sverri Þór Gunn­ars­son, bet­ur þekkt­ur sem Sveddi tönn. Hann sit­ur í fang­elsi í Bras­il­íu fyr­ir fíkni­efna­laga­brot og var meðal ann­ars tengd­ur við Stóra kókaín­málið.

Í sam­töl­un­um er minnst á að það komi ekki meiri fíkni­efna frá Svedda Tönn í bráð. „Það er fer­legt að fá ekki meira frá tönn­inni, alla­vega í bili.”

Þá virðist Jón Ingi íhugað að flytja til Bras­il­íu.

300 þúsund á mánuði

Spurður út í um­mæli þar sem seg­ir að starf­semi hóps­ins sé eins og fyr­ir­tæki sagðist Jón Ingi ekki kann­ast við þau. 

Ein sam­skipt­in sýna Jón Inga bjóða meðákærða 300 þúsund á mánuði og heyra beint und­ir hann.

Hann sagðist ekki vita af hverju lög­regl­an teldi að hann væri maður­inn sem ætti í öll­um þess­um sam­skipt­um.

„Bit­laus­ir rýt­ing­ar“

Jón Ingi ját­ar að hluta ann­an kafla ákær­unn­ar sem fjall­ar um fíkni­efna- og vopna­laga­brot.

Hann neit­ar að hafa átt fíkni­efni sem fund­ust á heim­ili hans, það voru nokk­ur grömm af hassi, kókaíni, maríjúna og tób­aks­blönduðu kanna­bis­efni.

Hann ját­ar þó að hafa átt „bit­lausa rýt­inga“ sem hann sagði hafa verið safn­gripi.

Að því loknu var skýrslu­töku yfir Jóni Inga lokið í bili, en fleiri skýrsl­ur verða tekn­ar yfir hon­um síðar í vik­unni. 

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert