Svo virðist sem einn sakborninga í Sólheimajökulsmálinu hafi haft áhyggjur af neyslumynstri höfuðpaurs glæpahópsins, Jóns Inga Sveinssonar. Jón Ingi hafi lifað hátt.
Aðalmeðferð í málinu hófst í dag. Glæpahópurinn er grunaður er um innflutning, vörslu, sölu og dreifingu fíkniefna.
Málið er umfangsmikið og flókið. Lögregla hefur lagt hald á um sex kíló af fíkniefnum, hátt í 40 milljónir króna, peningatalningavélar, auk verulegs magns vopna, þ.á.m. hin ýmsu skotvopn, sverð, fimm axir og fjölda stunguvopna.
Sakborningarnir eru 15. Þeir voru upprunalega 18 en þrír ákærðu hafa játað sök og hafa mál þeirra því verið skilin frá stóra málinu. Nokkrir sakborninganna hafa játað brot sitt að hluta.
Pétur Þór Elíasson er 36 ára og er telur lögregla hann hafa verið hægri hönd Jóns Inga í starfseminni. Pétur á bifreiðaverkstæði í Kópavogi.
Hann sagðist þekkja suma meðákærðu og hafa gert við bíla margra þeirra.
Hann neitar sök í ákærulið sem snýr að stórfelldu fíkniefnalagabroti og segist ekki kannast við fíkniefni sem lögregla gerði upptæk.
Meðal þess sem kemur fram í ákæru er að Pétur hafi tekið á móti rúmlega 12 milljónum króna í reiðufé á verkstæðinu. Peningurinn er talinn hafa verið afrakstur brotastarfseminar og/eða ávinningur af öðrum refsiverðum brotum.
Spurður af hverju hann hafi átt peningatalningavél, sem lögregla gerði upptæka, svaraði Pétur að það væri vegna rekstur fyrirtækisins. Hann hefði tekið á móti töluverðu reiðufé fyrir viðgerðir. Ekkert óeðlilegt væri að hann ætti vélina.
Lögregla telur að hann hafi notast við notendanöfnin Da Vinci og Piccasso á Signal. Símkort hans tengdi hann við annað þeirra.
Pétur neitaði hins vegar að hafa notast við nöfnin.
Þá neitaði hann að kannast við margvísleg samskipti sem Karl Ingi saksóknari bar undir hann við meðákærðu.
Hann viðurkenndi að vera góður vinur annars sakbornings sem heimsótti hann daglega á verkstæðið. Þá hafi þeir rætt ýmislegt sín á milli.
Vinurinn átti meðal annars að hafa kvartað við Pétur í janúar vegna neyslumynstur Jóns Inga. Sagði hann það hafa slæm áhrif á starfsemi hópsins. Hann sagði Jón Inga hafa lifað hátt.
Spurður út í hagi sína sagðist Pétur eiga fjölskyldu og vera í fullu námi.