Stefán E. Stefánsson
Svandís Svavarsdóttir, formaður VG, segist ekki hafa sýnt Höllu Tómasdóttur óvirðingu þegar hún neitaði beiðni hennar um að taka sæti í starfsstjórn fram að kosningum.
Þetta fullyrðir Svandís í viðtali í Spursmálum en þar er hún spurð út í atburðarásina sem leiddi til þess að ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, VG og Framsóknarflokks sprakk, þing var rofið og boðað til kosninga.
Vakti þar mikla athygli hversu harkalega Svandís brást við, tæmdi skrifstofu sína og fór úr ráðuneytinu í fússi áður en hægt var að gefa út forsetaúrskurð þess efnis að hún hefði látið af embætti.
Segist hún ekki hafa óhlýðnast forseta lýðveldisins eða gengið gegn vilja hennar. Forseti hafi einvörðungu beðið hana „mjög eindregið að íhuga það“ að taka sæti í stjórninni.
Viðtalið við Svandísi má sjá og heyra í heild sinni hér að neðan: