Stórfelld uppbygging áformuð við Holtsós

Á þessari tölvugerðu mynd má sjá nokkrar þeirra bygginga sem …
Á þessari tölvugerðu mynd má sjá nokkrar þeirra bygginga sem ætlunin er að rísi við Holtsós undir Eyjafjöllum.

Skipulagsstofnun hefur lagt fram til kynningar matsáætlun þar sem lýst er áformum fyrirtækisins Steinar Resort ehf. um stórfellda uppbyggingu ferðaþjónustu við austanverðan Holtsós undir Eyjafjöllum í Rangárþingi eystra.

Áformar fyrirtækið að byggja þar 200 herbergja hótel við Þjóðveg 1, ásamt 120 herbergja hóteli með baðlóni auk 200 smáhýsa. Þá er og gert ráð fyrir fastri búsetu starfsmanna í 48 starfsmannaíbúðum. Ætlunin er að setja upp fjölorkustöð við þjóðveginn, ásamt verslunar- og þjónusturými.

Nýverið var greint frá svipuðum áformum fyrirtækisins um uppbyggingu ferðaþjónustu í Ásahreppi í Rangárþingi ytra, en frá þeim var fallið í kjölfar þess að fram kom mikil andstaða heimamanna við þær hugmyndir.

Nánari umfjöllun er að finna í Morgunblaðinu í gær, laugardag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka