Ekki gerlegt að sakfella eftir lýsingu í ákæru

Björgvin Jónsson lögmaður.
Björgvin Jónsson lögmaður. mbl.is/Karítas

Björg­vin Jóns­son, verj­andi Jóns Inga Sveins­son­ar, gagn­rýndi ákæru héraðssak­sókn­ara í Sól­heima­jök­uls­mál­inu harðlega, auk vinnu­bragða lög­reglu við rann­sókn máls­ins.

Ákæru­valdið fer fram á sex og hálfs árs fang­elsi yfir Jóni Inga sem tal­inn er vera höfuðpaur glæpa­hóps sem stóð að inn­flutn­ingi, vörslu, sölu og dreif­ingu fíkni­efna.

Björg­vin fer fram á að Jón Ingi verði sýknaður eða dæmd­ur til væg­ustu refs­ing­ar sem lög heim­ila fyr­ir ákveðna ákæru­liði. Þá krefst hann þess að gæslu­v­arðhaldsvist komi til frá­drátt­ar dæmdri refsi­vist.

Björg­vin fer fram á að hafnað verði upp­töku­kröfu á fjár­mun­um sem fund­ust á heim­il­um Jóns Inga. Um 310 þúsund krón­ur, 24 þúsund evr­ur, 100 tyrk­nesk­ar lír­ur og 20 pólsk slotí. Fyr­ir dómi sagði Jón Ingi að um tekj­ur af veiðit­úr­um sem hann fór með ferðamenn í væri að ræða.

Björgvin er hér annar til vinstri.
Björg­vin er hér ann­ar til vinstri. mbl.is/​Karítas

Eng­in verknaðarlýs­ing

Björg­vin sagði að burt­séð frá allri sönn­un telji hann ekki ger­legt að sak­fella Jón Inga eft­ir lýs­ingu í ákær­unni um stór­fellt fíkni­efna­laga­brot og skipu­lagða brot­a­starf­semi.

Níu sak­born­ing­ar eru ákærðir í þeim kafla ákær­unn­ar og sagðir hafa sam­mælst og verið meðvitaðir um til­tekna verka­skipt­ingu við geymslu, pökk­un, sölu og dreif­ingu fíkni­efna.

Verj­and­inn sagði að eng­in verknaðarlýs­ing væri til staðar, ekk­ert um áætlað magn fíkni­efna, fjölda til­vika eða teg­und fíkni­efna.

Þá sé fjallað um ní­menn­ing­ana líkt og þeir séu eitt mengi.

Úr dómsal í morgun.
Úr dómsal í morg­un. mbl.is/​Karítas

Björg­vin sagði ókleift fyr­ir verj­end­ur að átta sig á verknaðarlýs­ingu og tor­velt að gera sér grein fyr­ir hvað sak­born­ing­arn­ir eru sakaðir um.

Í máls­gögn­um er skýrsla lög­reglu um hlut­verk hvers sak­born­ings inn­an glæpa­hóps­ins. Velti Björg­vin því upp af hverju sú hlut­verka­lýs­ing væri í ákær­unni.

Þá sagði hann hvergi koma fram í ákæru um tengsl Jóns Inga við fíkni­efn­in sem voru hald­lögð. Ekk­ert standi um að hann hafi átt þau, flutt þau inn, pakkað þeim né búið þau til.

Lög­regla ekki farið að lög­um

Björg­vin gagn­rýndi vinnu­brögð lög­reglu við rann­sókn máls­ins og lýsti þeim sem „forkast­an­leg­um”. Hann sagði rann­sak­end­ur ekki hafa farið að lög­um við öfl­un sönn­un­ar­gagna.

Lögmaður­inn sagði lög­reglu hafa lagt nafna­lista fyr­ir vitni og þau ein­ung­is svarað eft­ir því sem fyr­ir þau var lagt. Því væri framb­urður þeirra ekki grund­völl­ur til sak­fell­ing­ar Jóns Inga.

Björg­vin sagði hljóðupp­tök­ur lög­reglu í besta falli ólög­mæt­ar og í versta falli falsaðar, líkt og Jón Ingi tel­ur.

Jón Ingi var hleraður meðan hann var í Dóm­in­íska lýðveld­inu. Svo virðist vera sem hler­un­ar­búnaði hafi verið komið fyr­ir í ferðatösku hans.

Björg­vin sagði þetta ólög­mætt og að eng­inn „heil­vita maður“ héldi því fram að það megi hlera fólk alls staðar.

Karl Ingi og lög­regla vilja meina að all­ar aðgerðir lög­reglu hafi farið fram hér­lend­is og séu lög­mæt­ar.

Björg­vin sagði hlut­lægni ekki verið gætt í vinnu­brögðum lög­reglu í mál­inu.

Í lok máls síns minnt­ist lögmaður­inn á að Jón Ingi hef­ur nán­ast hreina saka­skrá, fyr­ir utan einn skil­orðsbund­inn dóm í októ­ber 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert