Icelandair flutti 409 þúsund farþega í október, 12% fleiri en á sama tíma í fyrra. Þar af voru 35% á leið til Íslands, 17% frá Íslandi, 42% ferðuðust um Ísland og 6% innan Íslands.
Fram kemur í tilkynningu að eftirspurn eftir ferðum til Íslands hafi aukist á ný eftir minni eftirspurn mánuðina á undan.
Sætanýting var 84,6%, ein sú hæsta í októbermánuði. Stundvísi var 84,4% og jókst um 4,2 prósentustig á milli ára. Það sem af er ári hefur Icelandair flutt yfir fjórar milljónir farþega, 8% fleiri en á sama tíma í fyrra.
„Það er mjög ánægjulegt að sjá aukningu á ferðalögum til Íslands á ný og enn og aftur hvernig sveigjanleikinn í leiðakerfinu nýtist til þess að leggja áherslu á þá markaði þar sem eftirspurn er mest hverju sinni. Að sama skapi er mikill kraftur í ferðalögum Íslendinga með Icelandair en 11% aukning var á markaðnum frá Íslandi á milli ára,” segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilkynningunni.