Móðirin hlaut 18 ára dóm í Nýbýlavegsmáli

Konan fékk átján ára dóm.
Konan fékk átján ára dóm. mbl.is/Kristinn Magnússon

Móðir sem játaði að hafa orðið sex ára syni sín­um bana var í morg­un dæmd í átján ára fang­elsi í Héraðsdómi Reykja­ness.

Kon­an er um fimm­tugt og var hún einnig ákærð fyr­ir til­raun til mann­dráps en sagt er að hún hafi einnig reynt að ráða eldri syni sín­um bana.

DV sagði fyrst frá niðurtöðu dóms­ins en þing­hald var lokað.

Karl Ingi Vil­bergs­son staðfesti niður­stöðu dóms­ins í sam­tali við mbl.is

Kon­an, sem er um fimm­tugt, var ann­ars veg­ar ákærð fyr­ir mann­dráp og stór­fellt brot í nánu sam­bandi, og hins veg­ar til­raun til mann­dráps og stór­fellt brot í nánu sam­bandi. Hluti af vörn máls­ins snéri að kon­an væri ekki sak­hæf vegna and­legra kvilla.

Í ákæru máls­ins kem­ur fram að kon­an hafi svipt son sinn lífi með að setja kodda yfir and­lit hans og með báðum hönd­um þrýst kodd­an­um yfir vit hans og þrýst á háls hans og efri hluta brjóst­kassa hans og ekki linað þau tök fyrr en dreng­ur­inn var lát­inn. Lést hann af völd­um köfn­un­ar að því er fram kem­ur í ákær­unni.

Þá er hún sögð hafa farið inn í svefn­her­bergi eldri drengs­ins þar sem hann lá sof­andi á mag­an­um og tekið fyr­ir vit hans með ann­arri hendi og í hnakka hans með hinni. Þrýsti hún and­liti hans niður í rúmið þannig að hann gat ekki andað. Vaknaði dreng­ur­inn við þessa at­lögu og gat losað sig úr taki móður­inn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert