Sælukoti lokað vegna músagangs

Gunnlaugur vonast til að leikskólinn opni aftur á föstudag.
Gunnlaugur vonast til að leikskólinn opni aftur á föstudag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Leikskólanum Sælukoti í Reykjavík hefur verið lokað eftir að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fann mýs á leikskólanum við reglubundna úttekt. 

Þetta segir Gunnlaugur Sigurðsson, leikskólastjóri Sælukots, í samtali við mbl.is, en Rúv greindi fyrst frá. 

Hann vonast til þess að leikskólinn opni aftur á föstudag. 

Músagangurinn kom upp síðdegis í gær við eftirlit Heilbrigðiseftirlitsins. Í dag kom meindýraeyðir á leikskólann og nýttu starfsmenn daginn í að þrífa húsið og leikföng. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka