Gul viðvörun: Sunnan stormur

Gul viðvörun er í gildi til klukkan 11.
Gul viðvörun er í gildi til klukkan 11. mbl.is/Kristinn Magnússon

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna veðurs á norðanverðu Snæfellsnesi. Spáð er sunnan stormi, 18-25 m/s, með snörpum vindhviðum.

Gildir viðvörunin frá klukkan 6 í morgun til klukkan 11 en þá er ætlað að lægi á þessum slóðum.

Annars staðar á landinu verður fremur rólegt veður í dag. Á Suðausturlandi og Austfjörðum verður rigning eða súld. Úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hiti á bilinu 5 til 13 stig.

Heldur kólnandi á morgun

„Kringum hádegi á morgun, sunnudag, gengur svo í vestan og síðar suðvestan 10-18 m/s með skúrum, en þá styttir smám saman upp á Austurlandi. Heldur kólnandi,“ að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert