Hús vörubifreiðar varð alelda

Báðum útköllum var sinnt af slökkvistöðinni í Mosfellsbæ.
Báðum útköllum var sinnt af slökkvistöðinni í Mosfellsbæ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Síðasta sólarhringinn voru tveir dælubílar sendir í útköll á vegum slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu.

Annars vegar kom upp eldur í vörubíl en hús bifreiðarinnar var alelda þegar slökkvilið bar að garði. Vel gekk að slökkva eldinn, að því er fram kemur í færslu slökkviliðsins á Facebook.

Hitt útkallið var vegna þriggja ára barns sem hafði fest á sér fótinn í rimlum.

Báðum útköllum var sinnt af slökkvistöðinni í Mosfellsbæ.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert