Andlát á Litla-Hrauni

Litla-Hraun.
Litla-Hraun. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Fangi lést á Litla-Hrauni fyrr í dag.

Í samtali við mbl.is upplýsir Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður hagsmunasamtakanna Afstöðu, að fangi hafi látist en ekki líti út fyrir að um sjálfsvíg hafi verið að ræða né að andlátið hafi borið að með saknæmum hætti.

Hafa samtökin verið í samskiptum við fangelsisyfirvöld í dag og í kvöld. DV greindi fyrst frá.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert