Verkefni slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðisins eru af ýmsu tagi og í gærkvöld var sendur dælubíll til að aðstoða einstakling sem átti í vandræðum með að ná hring af fingrinum sem hann var með verk í.
Farið var með einstaklinginn á bráðamóttöku Landspítalans þar sem tókst að ná hringnum af með sérstökum hringaskera sem bráðamóttakan býr yfir.