Óvissustig á Vestfjörðum

Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna skriðu- og grjóthrunshætta á …
Óvissustigi hefur verið lýst yfir vegna skriðu- og grjóthrunshætta á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum. Ljósmynd/Lögreglan

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Vestfjörðum lýst yfir óvissustigi vegna skriðu- og grjóthrunshætta á norðan- og sunnanverðum Vestfjörðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu ríkislögreglustjóra. 

Aukin hætta er á skriðum og grjóthruni, sérstaklega undir bröttum hlíðum og farvegum þar sem vatn rennur niður hlíðarnar og jarðvegur er orðinn mjög blautur.

Hafa nokkrar skriður fallið á vegi á Vestfjörðum sl. sólarhring. Frekari upplýsingar á vef Veðurstofunnar.

Hér fyrir neðan má sjá myndskeið frá Visit Westfjords þar sem Aurskriðan sést vel.

Myndirnar eru frá Hnífsdalsvegi fyrr í dag.
Myndirnar eru frá Hnífsdalsvegi fyrr í dag. Ljósmynd/Lögreglan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert