Pólverjar horfa í auknum mæli hingað til lands

Lífskjör á Íslandi hafa laðað marga hingað til lands.
Lífskjör á Íslandi hafa laðað marga hingað til lands. Morgunblaðið/Karítas

Dýrtíð í Póllandi gæti haft í för með sér að fleiri Pólverjar leiti tækifæra á Íslandi en ella. Þetta segir Jacek Grybos en hann hefur mikla reynslu af íslenskum vinnumarkaði og sömuleiðis af samskiptum við Pólverja sem koma hingað í atvinnuleit.

Jacek nefnir sex ástæður fyrir því að Pólverjar muni horfa til Íslands.

Í fyrsta lagi sé verðlag að hækka í Póllandi. Í öðru lagi hafi mörg fyrirtæki í Póllandi sagt upp starfsfólki að undanförnu. Í þriðja lagi fái margir Pólverjar ekki vinnu við hæfi í Póllandi, þ.m.t. háskólafólk með vissan bakgrunn. Í fjórða lagi sé húsnæðiskostnaður á uppleið. Í fimmta lagi séu laun á Íslandi það mikið hærri en í Póllandi að það margborgi sig að koma til Íslands í vertíðarvinnu. Í sjötta og síðasta lagi séu flugsamgöngur milli Íslands og Póllands betri en nokkru sinni.

Á þessari öld hafa verið tengsl milli hagvaxtar og aðflutnings erlendra ríkisborgara til landsins.

Samfelldur hagvöxtur hefur verið á Íslandi frá árinu 2012 ef frá er talið farsóttarárið 2020. Samtímis hefur pólskum ríkisborgurum á Íslandi fjölgað úr 8.691 í ársbyrjun 2012 í 22.431 í byrjun þessa árs, samkvæmt Hagstofunni. Þeim hefur síðan fjölgað meira á þessu ári.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert