Arna innkallar kaffiskyr

Ljósmynd/Aðsend

Arna í Bolungarvík hefur tekið úr sölu og innkallað framleiðslulotu af kaffiskyri með kaffi og vanillubragði.

Skyrið er merkt best fyrir 14.11.2024 en varan stenst ekki gæðakröfur, að því er segir í tilkynningu.

Neytendum sem hafa keypt vöruna með umræddri dagsetningu er bent á að hægt er að skila henni í þá verslun þar sem hún var keypt eða snúið sér beint til Örnu.

Nánari upplýsingar veitir starfsfólk Örnu í síma 456 5600 eða í gegnum netfangið arna@arna.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert