Búið er að opna veginn um Súðavíkurhlíð en honum var lokað í gærkvöldi vegna hættu á grjóthruni.
Vegurinn um Eyrarhlíð í Skutulsfirði er enn lokaður vegna aurskriða. Unnið er að opnun en óvíst er hvenær tekst að opna veginn, að því er Vegagerðin greinir frá.
Lokað er í Ísafjarðardjúpi vegna aurskriða og vatns sem flæðir yfir veginn. Farið verður í að kanna aðstæður og vinna að opnun með morgninum. Vonast er til að hægt verði að opna fyrir hádegi.
Vatnsskemmdir eru á veginum um Dynjandisheiði og eru vegfarendur beðnir að aka varlega þar sem líkur eru á skriðuhættu.
Vegurinn um Steingrímsfjarðarheiði er lokaður, auk þess sem Bíldudalsvegur er í sundur og því lokaður frá flugvelli að gatnamótum við Dynjandisheiði.