Drífa Snædal, talskona Stígamóta, segir að iðrandi karlar með kvenhatur á samviskunni þurfi að gera meira en að biðjast bara afsökunar og gera lítið úr kvenhatri sínu og krefjast þess að málinu sé lokið. Stærra uppgjör þurfi til. Kynbundið ofbeldi sé faraldur á Íslandi sem nærist á kvenfyrirlitningu.
Þetta kemur fram í færslu sem hún birti á Facebook í dag en tilefni færslunnar eru væntanlegar fréttir af 20 ára gömlum bloggskrifum Þórðar Snæs Júlíussonar, frambjóðanda Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður.
Stefán Einar Stefánsson blaðamaður rifjaði færslurnar upp í þættinum Spursmál í vikunni, en þar kallaði Þórður konur meðal annars lævísar og undirförlar tíkur. Hann hefur gengist við skrifunum og beðist afsökunar. Kveðst hann hafa þroskast og breyst.
„Við þurfum miklu stærra uppgjör hvort sem það er gagnvart menningunni sem ríkti fyrir tuttugu árum síðan, sóðakjaftsmenningu þingmanna, vændiskaupum þingmanna, skrifum framjóðenda eða fjölmiðlamanna, eða hugmyndafræði um að draga úr völdum og sjálfsákvörðunarrétti kvenna,“ skrifar Drífa.
Hún segir að flestar konur verði fyrir ofbeldi eða áreitni af hálfu karla á lífsleiðinni og það að ofbeldið líðist búi til óöryggi í samskiptum kynja og liti þau, hvort sem ofbeldinu sé beitt eða ekki. Kynbundið ofbeldi sé faraldur á Íslandi.
„Að tala eða skrifa niðrandi um konur nærir faraldurinn. Að taka því ekki alvarlega þegar konur verða fyrir ofbeldi nærir faraldurinn. Gefur þau skilaboð að það sé í lagi að konur og kvár séu undirskipaðar körlum og karlar geta hagað sér nákvæmlega eins og þeim sýnist án afleiðinga. Þegar karlar með völd tala niðurlægjandi um konur þá afmennskar það konur og gefur þau skilaboð að það sé í lagi að vanvirða þær. Í samfélagi þar sem kynbundið ofbeldi er faraldur ógnar slíkt tal beinlínis öryggi kvenna,“ skrifar Drífa jafnframt.
„Og það ógnaði öryggi kvenna fyrir tuttugu árum síðan þegar karlar jusu úr skálum kvenfyrirlitningar sinnar á netinu, sömdu niðrandi lagatexta og snérust heiftarlega gegn konum sem kröfðust jafnréttis. Ég man vel eftir þeim tíma enda sá ég tilefni til að kæra nauðgunarhótun í einni slíkri bloggfærslu. Þetta var í alvöru veruleikinn og þegar karlar sem fóru með einhverskonar völd leyfðu sér svona skrif þá leysti það úr læðingi kvenhatur og kvenhatur ógnar öryggi kvenna. Það gerði það þá og það gerir það núna líka.“
Drífa segir þetta samhengið í uppgjöri við fortíðina og reyndar nútíðina líka. Það sé eins gott að viðurkenna því annars verði ekki hægt að komast áfram.
„Iðrandi karlar með kvenhatur á samviskunni þurfa að gera meira en bara biðjast afsökunar og gera lítið úr kvenhatri sínu og krefjast þess að þar með sé málinu lokið. Við þurfum miklu stærra uppgjör hvort sem það er gagnvart menningunni sem ríkti fyrir tuttugu árum síðan, sóðakjaftsmenningu þingmanna, vændiskaupum þingmanna, skrifum framjóðenda eða fjölmiðlamanna, eða hugmyndafræði um að draga úr völdum og sjálfsákvörðunarrétti kvenna.“
Drífa segir fæsta karla gera sér grein fyrir veruleika kvenna og kvára í samskiptum við þá.
„Þeir búa við klassíska forréttindastöðu sem felst í því að sjá ekki veruleika annarra. Ég legg því til að í stað þess að vera hissa, reyna að útskýra, bíða af sér storminn eða koma með hálfar afsakanir þá hlusti þeir raunverulega á veruleika þeirra sem verða fyrir kynbundnu ofbeldi eða eiga stöðugt á hættu að verða það. Leggist svo á sveif með þeim fjölda sem vinnur að því að uppræta kynbundið ofbeldi, vinna að því að minnka skaðann sem kvenfyrirlitning veldur.“