EasyJet bætir við flugferðum til Akureyar

easyJet mun bæta við flugferðum til Akureyrar.
easyJet mun bæta við flugferðum til Akureyrar. Ljósmynd/Aðsend

Breska flugfélagið easyJet hefur tilkynnt að það muni bæta við flugferðum frá London Gatwick til Akureyrar í apríl og október á næsta ári.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands.

Áður hafði staðið til að fljúga út í mars á næsta ári og hefja flugin að nýju í nóvember og verður því flugfélagið nú mánuði lengur með flug í boði þennan vetur og næsta haust.

Í tilkynningunni segir að svæðisstjóri easyJet i Bretlandi, Ali Gayward, hafi tilkynnt fréttirnar á ráðstefnunni Flug til framtíðar í Hofi í dag.

Var hún ekki sjálf viðstödd fundinn en sendi myndbandsupptöku þar sem hún fór yfir hvernig tekist hefði til með flug easyJet til Akureyrar.

Mæta vaxandi eftirspurn eftir ferðum til Norðurlands

„Við erum mjög ánægð með að tilkynna um þessa viðbót við okkar framboð og fleiri valmöguleikum viðskiptavina okkar. Við viljum með þessu mæta vaxandi eftirspurn eftir ferðum til Norðurlands, sem við höfum sérstaklega tekið eftir á milli ára með flugin frá London Gatwick. Með viðbótinni frá Manchester getum við náð til mun fleiri viðskiptavina á Norður-Englandi,“ er haft eftir svæðisstjóranum.

Þá segir hún að áfram verði fylgst með eftirspurn frá Manchester og að félagið hafi mikla trú á þeirri leið miðað við viðbrögðin hingað til.

Segir hún að eftirspurnin eftir vetrarferðum frá Bretlandi sé mun meiri en á öðrum árstímum og þess vegna verði boðið upp á flug á þessu tímabili.

Jafnar árstíðarsveifluna

Haft er eftir Arnheiði Jóhannsdóttur, framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands, að það sé mikið fagnaðarefni að fá inn flug þessa tvo haust og vormánuði þar sem það opni á flug í vetrarfríum bæði Breta og Íslendinga.

„Í apríl hefur verið rólegra hjá norðlenskri ferðaþjónustu og því lengir þetta enn tímabilið þar sem við getum boðið upp á fulla þjónustu og jafnað árstíðarsveifluna,“ segir framkvæmdastjórinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert