Telur líklegt að málinu verði áfrýjað

Sigurður Ingi ræddi við mbl.is um niðurstöðu héraðsdóms.
Sigurður Ingi ræddi við mbl.is um niðurstöðu héraðsdóms. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar, telur líklegt að dómi Héraðsdóms Reykjavíkur, um að af­greiðsla bú­vöru­laga á Alþingi í vor hafi verið í andstöðu við stjórn­ar­skrá, verði áfrýjað.

Spurður hvort að hann vonist til þess að þessu verði áfrýjað segir Sigurður:

„Mér finnst það bara líklegt. Þetta er þess eðlis mál, eins og ég skil það að þá gæti það haft umtalsverðar afleiðingar og þá er eðlilegt að það sé skoðað frá öllum hliðum,“ segir Sigurður í samtali við mbl.is.

Mikill meirihluti þings studdi þessi breytingu“

Eft­ir að mat­vælaráðherra hafði lagt fram frum­varp um breyt­ing­ar á bú­vöru­lög­um gerði at­vinnu­vega­nefnd um­tals­verðar breyt­ing­ar á frum­varp­inu, þar sem kjötaf­urðastöðvum var meðal ann­ars veitt und­anþága frá sam­keppn­is­lög­um. Í niður­stöðu héraðsdóms sagði að ekki gera mætti svo mikl­ar breyt­ing­ar frum­varpi í meðför­um þings­ins að í raun sé um nýtt frum­varp að ræða.

Ertu sammála þessari niðurstöðu?

„Nú er þessi dómur nýfallinn, ég þekki hann ekki. Aðalatriðið er þetta að stefnumörkunin er alveg skýr og mikill meirihluti þings studdi þessi breytingu. Að bændur á þessum hluta markaðarins séu með sambærilega stöðu og til að mynda mjólkurframleiðendur og hvað þá bændur í öðrum löndum,“ segir hann.

Vill bíða með yfirlýsingar um mögulega skaðabótaskyldu

Á grund­velli þess­ara und­anþágu­heim­ilda sem lög­in tryggðu hef­ur KS m.a. yf­ir­tekið Kjarna­fæði Norðlenska og í fjöl­miðlum hef­ur ný­lega verið greint frá mögu­leg­um kaup­um fé­lags­ins á B. Jensen, sem rek­ur slát­ur­hús og kjötvinnslu.

Spurður hvort að ríkið verði mögu­lega skaðabóta­skylt ef Sam­keppnis­eft­ir­litið myndi gera at­huga­semd og kaup­um KS á Norðlenska rift seg­ir Sigurður:

„Nú erum við komin í „hvað ef“. Eins og ég segi þá hef ég nú ekki rýnt þennan dóm og ég held að það eigi nú að bíða með slíkar yfirlýsingar,“ segir hann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert