#49. - Hvert stefnir hugur Þorgerðar?

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    Nýj­asti gest­ur Spurs­mála er Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, formaður Viðreisn­ar. Í þætt­in­um var hún meðal ann­ars spurð út í full­yrðing­ar fram­bjóðenda flokks­ins þess efn­is að flokk­ur­inn geri aðild­ar­viðræður að ESB að skil­yrði.

    Þátt­ur­inn var sýnd­ur hér á mbl.is fyrr í dag en upp­töku af hon­um má nálg­ast í spil­ar­an­um hér að ofan, á Spotify og YouTu­be.

    Fylgið fer með him­inskaut­um

    Flokk­ur Þor­gerðar Katrín­ar fer mik­inn í skoðana­könn­un­um þessa dag­ana og margt sem bend­ir til þess að hún verði í lyk­il­stöðu þegar kem­ur að stjórn­ar­mynd­un­ar­viðræðum að lokn­um kosn­ing­um þann 30. nóv­em­ber næst­kom­andi. Hvert stefn­ir hug­ur henn­ar?

    Það kem­ur allt í ljós í þess­um 49. þætti Spurs­mála.

    Hverj­ar eru lík­urn­ar?

    Í þætt­in­um var einnig rætt við Brynj­ólf Gauta Guðrún­ar Jóns­son, doktorsnema í töl­fræði við Há­skóla Íslands, en hann hef­ur í fé­lagi við nokkra sam­starfs­menn komið upp kosn­inga­spálíkani á heimasíðunni www.metill.is. Þar er spáð fyr­ir um hvernig kosn­ing­arn­ar muni fara.

    Hon­um til fullting­is í þætt­in­um var Ei­rík­ur Berg­mann Ein­ars­son, pró­fess­or í stjórn­mála­fræði. Rýndi hann meðal ann­ars í töl­fræðina frá Brynj­ólfi og fór yfir stöðuna í stjórn­mál­un­um al­mennt.

    Ekki missa af upp­lýs­andi og spenn­andi kosn­ingaum­ræðu í Spurs­mál­um hér á mbl.is klukk­an 14 alla þriðju­daga og föstu­daga fram að kosn­ing­um.

    Eiríkur Bergmann og Brynjólfur Gauti Guðrúnar Jónsson rýna í tölur …
    Ei­rík­ur Berg­mann og Brynj­ólf­ur Gauti Guðrún­ar Jóns­son rýna í töl­ur og spá í spil­in. Þor­gerður Katrín stend­ur fyr­ir máli sínu og ræðir stefnu Viðreisn­ar í mála­flokk­um af ýmsu tagi, allt frá út­lend­inga­mál­um til gjald­miðils­mála. Kristó­fer Lilj­ar
    mbl.is

    Bloggað um frétt­ina

    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert